Fara í efni

Tónaflakk // Tónlistarmiðstöð á Ísafirði

Tónlistarmiðstöð í samstarfi við Tónlistarskóla Ísafjarðar stendur fyrir fræðsluviðburði á Ísafirði til að kynna starfsemi sína, og þá þjónustu og stuðning sem tónlistarfólk og fólk sem starfar í íslenskum tónlistargeira getur sótt til hennar.

Tónlistarmiðstöð í samstarfi við Tónlistarskóla Ísafjarðar stendur fyrir fræðsluviðburði á Ísafirði til að kynna starfsemi sína, og þá þjónustu og stuðning sem tónlistarfólk og fólk sem starfar í íslenskum tónlistargeira getur sótt til hennar. Að auki verður kynning á endurgreiðslum vegna hljóðritunar á tónlist á Íslandi og nýjum og efldum Tónlistarsjóði sem Tónlistarmiðstöð annast fyrir hönd Menningar- og viðskiptaráðuneytisins.
Dagskrá:
Tónlistarmiðstöð: Meðal hlutverka hennar er að efla og kynna íslenska tónlist á alþjóðavettvangi, tengja íslenskt tónlistarfólk við erlenda markaði og veita ráðgjöf og stuðning til tónlistarfólks og annarra sem starfa í íslenskum tónlistargeira. Upplýsingar á icelandmusic.is
Tónlistarsjóður: Sjóðurinn veitir styrki til íslensks tónlistarfólks og verkefna með það að markmiði að styðja við þróun tónlistargeirans, efla útgáfu, tónlistarflutning og kynningu á íslenskri tónlist bæði heima og erlendis. Upplýsingar á icelandmusic.is/tonlistarsjodur.
Endurgreiðslur vegna hljóðritunar á tónlist: Tónlistarfólk getur sótt um endurgreiðslu á kostnaði vegna hljóðritunar á tónlist á Íslandi frá Menningar- og viðskiptaráðuneytinu. 80% eða meira af kostnaði þarf að hafa fallið til á Íslandi og hægt er að sækja um endurgreiðslu á 25% af kostnaði. Upplýsingar á https://www.record.iceland.is/
 
Aðgangur er ókeypis
Kaffi og meðlæti