Fara í efni

Þriðja rýmið í Blábankanum

Núna er Þriðja rýmið líka Í Blábankanum á Þingeyri. Reynt verður að hittamst þar nokkuð reglulega í létt kaffispjall á íslensku. Íslenska æfist best með íslensku og saman. Það er gaman!
Fyrsta skiptið á sér stað 31. október klukkan 20:00. Endilega kíkið og takið einhvern sem er að læra, sem vill læra íslensku með ykkur og hjálpið við máltileinkun viðkomandi.