Sáum saman og skiptumst á fræjum
22. mars kl. 16:00-18:00
Námskeið
Við ætlum að sá fræjum - kryddjurtum, matjurtum og blómum - á Bókasafninu Ísafirði föstudaginn 22. mars 16-18. Fræ, ílát og mold verða á staðnum en velkomið að koma með eigin ílát ef það hentar betur.
Samhliða verður frædeilimarkaður: tilvalið að koma með hlutann úr fræpokanum sem þú þarft ekki og fá önnur fræ í staðinn.
Verið öll hjartanlega velkomin.