Leirgusa
24. júlí kl. 20:00-21:30
Íþróttir
Leirgusa Komdu og spjallaðu um leir í gusu. Kynntu þér vestfirskan leir, finndu áferðina og leyfðu efninu að leiða þig áfram.
Í leirgusunni færðu leirinn í hendurnar í pásunni og upplifir hvernig er að snerta leirinn. Við tengjumst efniviðnum og leyfum töfrunum í kristöllunum að hafa áhrif á okkur.
Upplifun í gegnum frumefnin fjögur – jörð, vatn, loft og eld. Þetta er opið rými fyrir forvitni, samtal og sköpun. Engin reynsla er nauðsynleg – aðeins löngun til að kanna, snerta og spjalla.
Bókaðu á Fjörugusa
Hluti af verkefninu Leirfjörður sem er styrkt af Uppbyggingarsjóð Vestfjarða