Bændafundur í Stjórnsýsluhúsinu á Ísafirði
13. nóvember kl. 12:00
Viðburðir á norðanverðum Vestfjörðum
Stjórn Bændasamtakanna, framkvæmdastjóri og starfsfólk ætla að bjóða bændum á fundi víðs vegar um landið. Á Ísafirði verður hist miðvikudaginn 13. nóvember kl. 12, í fundarsal á 4. hæð Stjórnsýsluhússins.
Spjallað verður um starfsemi Bændasamtakanna, málefni bænda og hvað sem brennur bændum á hjarta.