Fara í efni

Sýningarsalir og gallerí

Gallerí Úthverfa/Outvert Art Space

Gallerí Úthverfa / Outvert Art Space er vettvangur fyrir samtímalist og tilraunakennd verkefni sem unnin eru þvert á listgreinar. Starfsemi gallerísins var gangsett árið 2013 í húsnæði gamla Slunkaríkis af Elísabetu Gunnarsdóttur og Gunnari Jónssyni myndlistarmanni.


Opið

Fimmtudaga–laugardaga 16:00 - 18:00 og eftir samkomulagi.

Vefur Úthverfu
Facebook-síða Úthverfu

 

Starfsemi gallerísins fer fram í náinni samvinnu við alþjóðlegar gestavinnustofur ArtsIceland. ArtsIceland og Úthverfa / Outvert Art Space leggja áherslu á að greiða götu listafólks og sýniningarstjóra og gera þeim kleift að framkvæma verkefni sem geta skipt máli og haft afgerandi menningarleg áhrif.