Fara í efni

Söfn

Safnahúsið Ísafirði — Gamla sjúkrahúsið

Safnahúsið stendur við Eyrartún á Ísafirði. Það hýsir Bókasafnið Ísafirði, Skjalasafnið Ísafirði, Ljósmyndasafnið Ísafirði og Listasafn Ísafjarðar.


Opið:

Virkir dagar
12-18
Laugardagar
13-16
Sunnudagar og rauðir dagar
Lokað

www.safnis.is


Í Safnahúsinu er einkar vel hugsað um gesti á öllum aldri. Í dagstofu safnsins á 2. hæð er hægt að setjast niður og glugga í blöð og tímarit. Á 2. hæð er einnig sýningarsalur hússins þar sem jafnan eru fjölbreyttar sýningar í gangi. Á fyrstu hæð er barnadeild safnsins útbúin með þarfir yngstu gesta safnsins í huga.

Skrifstofur starfsmanna eru á efstu hæð hússins.

Aðgengi fyrir hreyfihamlaða er norðanvert við húsið. Þar er m.a. lyfta fyrir hjólastóla.