Sumarnámskeið
Skapandi tónlistarnámskeið fyrir 6.-10. bekk
Dagsetningar
16.-20. júní
Verð
15.000 kr.
Staðsetning
Rögnvaldarsalur, Edinborgarhúsinu á Ísafirði

Skemmtilegt og lifandi námskeið þar sem þátttakendur fara í tónlistarleiki, prófa sig áfram á hljóðfæri og semja tónlist saman. Námskeiðinu lýkur með tónleikum þar sem þátttakendum gefst tækifæri til að flytja afrakstur námskeiðsins fyrir aðstandendur og gesti.
Kennsla fyrir 6.–10. bekk fer fram í Rögnvaldarsal Edinborgarhússins á Ísafirði dagana 16.–20. júní kl. 9-12.
Þáttökugjald er 15.000 kr. Veittur er systkinaafsláttur er nemur 5.000 kr. á hvert systkini eftir fyrsta sem skráð er.
Kennarar:
Svava Rún Steingrímsdóttir
Katrín Karítas Viðarsdóttir