Tónlistarhátíðin Við Djúpið
16.-20. júní
westfjords.is
Tónlistarhátíðin Við Djúpið er kammertónlistarhátíð þar sem ný og gömul tónlist mætast í fjöbreyttri tónleikadasgskrá þegar sól er hæst á lofti, um sumarsólstöður, á Ísafirði ár hvert. Samhliða tónleikadagskrá er boðið upp á sumarnámskeið fyrir tónlistarnemendur. Ísafjörður skapar einstaka umgjörð þar sem aðstaða til tónleika- og námskeiðshalds er til fyrirmyndar og náttúran býður upp á afþreyingu fyrir alla.