Fara í efni

Þriðja rýmið í Safnahúsinu

Viltu æfa þig að tala íslensku? Þetta er staðurinn!
You want to practice speaking Icelandic? This is the place!
Við viljum skapa öruggan stað fyrir fólk til að æfa sig í að nota alls konar íslensku og stað þar sem móðurmálshafar koma og veita sitt liðsinni, gegna hlutverki almannakennara.
Ekkert tungumál lærist nema það sé notað og við verðum að gefa fólki tækifæri til þess og einnig að haga okkar máli samkvæmt getustigi þess sem við tölum við. Máltileinkun gengur í báðar áttir.
Endilega látið sjá ykkur. Takið vin, maka, kunningja sem vill læra og æfa íslensku með.