Gullkistan Vestfirðir
6. september kl. 12:00-17:00
Viðburðir á norðanverðum Vestfjörðum
Stórsýningin Gullkistan Vestfirðir fer fram í íþróttahúsinu á Torfnesi, Ísafirði, laugardaginn 6. september.
Gullkistan Vestfirðir 2025 – Þar sem hugmyndir blómstra, tengsl myndast og framtíðin fæðist.
Gullkistan Vestfirðir er metnaðarfull og fjölbreytt sýning sem dregur fram það besta sem Vestfirðir hafa upp á að bjóða í atvinnulífi og menningu. Markmiðið er að sýna Vestfirði sem líflegt og framsækið svæði – svæði sem byggir á sterkum rótum og blómstrar með hugviti í átt að sjálfbærri og farsælli framtíð.
Á Gullkistunni Vestfirðir segjum við sögur af svæði sem þorir og getur – þar sem fjölbreytt mannlíf, tækninýjungar, frumkvæði og samheldni móta samfélag í stöðugri þróun.