Akureyrarveikin - kynning á bók
4. október kl. 16:00-17:00
Menning
Akureyrarveikin er bók eftir Óskar Þór Halldórsson sem nýverið kom út. Faraldurinn barst frá Akureyri til m.a. Ísafjarðar þar sem var mjög alvarlegur faraldur veikinnar snemma árs 1949 og var samkomubann þar í gildi í samfellt eitthundrað daga. Margir Ísfirðingar og nærsveitamen veiktust alvarlega og glímdu við eftirköst veikinnar í mörg ár og áratugi, sumir alla ævi.
Bókarhöfundur, Óskar Þór Halldórsson, segir frá bókinni á kynningu sinni í Edinborgarhúsinu og verður einnig með hana til sölu.