Fara í efni

Sumarnámskeið

Skapandi tónlistarnámskeið fyrir 1.-5. bekk

Dagsetningar
16.-20. júní
Verð
15.000 kr.
Staðsetning
Rögnvaldarsalur, Edinborgarhúsinu á Ísafirði

Skemmtilegt og lifandi námskeið þar sem þátttakendur fara í tónlistarleiki, prófa sig áfram á hljóðfæri og semja tónlist saman. Námskeiðinu lýkur með tónleikum þar sem þátttakendum gefst tækifæri til að flytja afrakstur námskeiðsins fyrir aðstandendur og gesti.

Kennsla fyrir 1.–5. bekk fer fram í Rögnvaldarsal Edinborgarhússins á Ísafirði dagana 16.–20. júní kl. 13-16.

Skráning

Þáttökugjald er 15.000 kr. Veittur er systkinaafsláttur er nemur 5.000 kr. á hvert systkini eftir fyrsta sem skráð er.

Kennarar:
Svava Rún Steingrímsdóttir
Katrín Karítas Viðarsdóttir